Emil Kristófer
10.01.2008 20:15:08 / emil

Jæja langt síðan..

Hvað segið þið..það er orðið ansi langt síðan síðast. Er nokkur að fylgjast með ?

Kveðja Emil nýlega orðin jetski eigandi =)


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 13:06:29 / emil

Uppdate..

Við Vala vorum að koma frá London á þriðjudaginn í 4 daga ferð, sem var nokkuð mögnuð, skoðuðum okkur um í London en mikill tími fór samt í að versla en það eru skrilljón búðir þar og ekki minna af fólki á götunum. En mögnuð borg þar sem hún er stúttfull af eldgömlum og sögufrægum byggingum. Við gistum hjá bróður kærasta systur minnar og var það bara mjög fínt, við lærðum líka aðeins á lestarkerfið þegar við vorum að flakka á milli. Fórum á Indverskan stað með fólki sem var einnig í heimsókn hjá þeim auk systur minnar, Völu fannst hann nú ekkert spes mér fannst hann bara fínn.:S Vala átti einmitt afmæli á Sunnudeginum (25 ára) og fékk hún svona afmælis söng með ís og blysum í eftirrétt.:D Við heimsóttum svo Winchester sem er lítill bær á við 2 Akureyri, þar sem Íris systir er í listanámi. Mér finnst þessi bær magnaður, lítill með helling af gömlum geðveikt flottum kirkjum og byggingum og lítilli göngugötu með flottum búðum, þar sem ég t.d. keypti mér jakka fyrir um 20 þús og skó.Við skoðuðum okkur aðeins um og íris leiðbeindi okkur og var fínn guide alla ferðina, Skoðuðum t.d. langstu fornaldarkirkju í Evrópu, svo er t.d. hið fræga round table staðsett þar. nokkur stríðsára söfn og fleira. Skutumst svo til Southampton síðasta daginn og versluðum eitthvað. Vala komst nokkrum sinnum í innkaupaham í ferðinni og oftar en ekki sá ég hana tæta spjarir og róta um eins og lítill krakki í sumum búðum..hehe. Tókum svo taxa sem var reyndar 8 manna og lét ílla í háum snúningi á hraðbrautinni til Standstead flugvallar. Ég fer pottþétt aftur til Englands! Og takk fyrir Íris.

Er annars kominn með vinnu hjá Orkuveitu Reykjavíkur og kann bara ágætlega við. Erað vinna hjá ljósleiðaradeild og erum í því að tengja, hef ekki mikla reynslu í þessu en er gott að læra nýtt, Þetta er kannski full fíngerð vinna fyrir mig, miðað við það sem ég hef verið í. Er reyndar bara að vinna fram að hádeigi því ég er í rauninni ekki búin með einkaþjálfarann fyrr en 9 júní, er með eina konu í þjálfun og aðhaldi sem ég skrifa um og skila svo skýrslu í lok námsins, svo á ég líka að vera byrjaður að læra fyrir prófið :|.

Við Vala og börn fáum svo íbúðina 1 júní, þarf að parketleggja,flísa og mála áður þannig við flytjum aðeins seinna inn , erum líka að spá í húsgögnum og svona. Verður mjög gott að flytja.:)

Er farin að langa mikið að fara taka roadtrip um landið, sumarið að nálgast. Hafið þið einhverjar hugmyndir að útileigu 8)?

Jæja hafið það gott, ætla reyna gera eitthvað af viti...

Solooooong....


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 22:45:28 / emil

......

Páskar að koma.Frí frammundann.Vala að koma =)... Akureyri.Snjóbretti, spíttbátur.Vaxtarræktarmót á akureyri. Hættur á Reyðarfirði.Frí frá stressi í vinnunni.Einkaþ.skóli að byrja.vinna eitthvað með.vangaveltur um tekjur.Flytja suður.pakka saman.Flytja inn í Jún.Vilmar að koma. sjá ættingja. borða góðan mat.páskaegg grr.spá í húsgögnum.taka á móti Sveinsbréfi.Skoða vinnumöguleika.byrja á prógrammi......

Já þetta er svona eitthvað af því sem er á döfinni hjá manni..:$

Er ekki besti bloggarinn þessa stundina..

en hverjum er ekki sama..;)........ ætla fara koma mér á Reyðarfjörð......Seinna


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 16:18:18 / emil

Löggiltur Rafvirki..

Þá er maður búin að ná öllum prófum og orðin löggiltur rafvirki..:D. mikill léttir að vera loksins búin með þetta..8). jemm jemm. ætla bara rétt að láta vita, nenni engu bloggi núna. Er að njóta þess að vera með Völu minni í fríinu og er búin að hafa það rosalega gott með henni :). er svo að fara austur í fyrramálið að vinna..:S.

Fínt í bili..

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 20:15:14 / emil

Mustas ruzky...

 Stafsetningin mun ekki verda god vegna tess ad lyklabordid er ekki islenskt.:|

Um daginn var ad myndast stemning hja okkur strakunum ad fara safna mustasi eda fyrir leikmenn yfirvaraskeggi, og tar af leidandi ad fitta inn i hopinn med nokkrum virdulegum polverjum. sumir eru bunir ad taka af skarid og eg aetladi eitt kvoldid ad skilja eftir yfirvaraskeggi en gleymdi mer adeins og var rett nybyrjadur ad raka odrum meginn tegar eg fattadi tad. hugsadi um ad raka ta kannski hinum megin og skilja eftir svona hitler skegg. en for ta ad hugsa um hvernig allir teir polverjar sem eru her myndu taka tvi og var fljotur ad raka allt af. hehe:lol:. en hitler kallinn redst fyrst inn i polland i seinni heimstyrjoldinni, ef einhver vissi ekki.

Annars allt agaett ad fretta her, fin adstada og finn matur. hlakka samt ad komast sudur...8)

aetla ekki ad hafa tetta neitt lengra i bili, aetla kikja adeins a local barinn med tveimur strakum sem eg er ad vinna med, er alveg til i einn kaldann, kannski tvo. p.s. stor heineken eda alika bjor kostar her 350 kall. nokkud gott.;

tangad til naest...

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.02.2007 19:15:10 / emil

Sveinsprófin Búin..!

Var í dag að klára síðasta sveinsprófið:), var í allan dag í verklegu og það gekk bara mjög vel en náði samt ekki að klára verkefnið alveg. náði ekki að  klára stýringuna sem ég kunni og því doldið grátlegt en ástæðan var einfaldlega að tíminn sem við fengum var of stuttur, ég held að engin hafi náð að klára að fullu8|. bóklegu prófin gengu svona allt í lagi nema kannski reglugerðin sem á að vera frekar létt og var því of kærulaus að læra fyrir hana, var heldur að leggja meiri áherslu á að læra fyrir mælingu sem var sama dag. djö!:evil: er ekki viss um að ég ná henni, en kemur í ljós 9 mars. ég held að í öllum prófunum hafi mig vantað aðeins meiri tíma, enda er ég snillingur í því að fara vitlaust að í prófi ,  vera of lengi að velta mér yfir dæmum gilda lítið,:( byrja ekki á þeim dæmum sem ég kann heldur brenna inni á tíma og geta ekki svarað þeim..En það verður spennandi að sjá á morgun hvernig gekk í verklega, og svo í bóklega þann 9 mars. Allavega gott að vera búin með þetta. og ef ég næ kannski ekki einhverju þá fer í prófið aftur í júní en bara í þeim dæmum sem ég gerði ekki eða gerði rangt.:S

 Annars er það bara að frétta að ég fer austur á morgun og byrja vinna á Reyðarfirði aftur á mánudagsmorgun. í einn og hálfan mánuð, þá fer ég suður aftur í einkaþjálfarann, já kjellinn alltaf að læra, mig er farið að hlakka doldið til..:D.ætli ég muni ekki búa með keflavíkingunum sem ég er að vinna með í búðunum, það verður ágætt að safna upp peningum og búa frítt. Það er jú eini kosturinn við það að vinna á Reyð. PENINGAR. Ég myndi þá vinna í 10 daga úthöldum og frí í fjóra, eða jafnvel vinna fyrir sunnan einn eða tvo daga í "fríinu" myndi þá fljúga með þeim suður og hitta hana völu mína..;) er farin að hlakka til að sjá hana aftur..

En í kvöld verður dottið í það,! prófin búin og bjórinn teigaður! menn lamdir og drukkjulæti fram á morgun..nei ég segi svona:lol:, Er allavega að fara á djammið með mána og óla steina í kvöld, og sjá einhver kunnugleg andlit í mínum fyrirverandi hometown. það verður gaman að því..

Jæja þetta er orðið alltof laaangt blogg... best að halda kjafti

þangað til næst bara.....

Emil out..:P  


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 17:20:59 / emil

Flakk á manni...

Jæja það er kannski komin tími á að maður hendi inn einni færslu, svona allavega svo þið haldið ekki að ég sé dauður. :D

Ég er búin að vera í Reykjavík síðasta mánuðinn á námskeiði og kom til Akureyrar í dag. Sveinsprófið byrjar nebbla hjá mér á fimmtudaginn og er ekki frá því að smá stress sé að færast yfir mann..:S. enda búin að vera langur aðdragandi að því. Þeir sem taka prófið í bænum byrjuðu í gær en við sem tökum það á ak byrjum 3 dögum seinna, en það er víst ekki sama prófið og við tökum þannig það þýðir víst lítið að hringja og njósna.

 Var ekkert smá slappur í gærkvöldi, fékk einhverja magapest, hita og svima, einmitt þegar var búið að bjóða mér í mat :S. leit ekki vel út með það að geta svo keyrt til ak núna í morgun, og leiðinlegt þar sem mig langaði til að vera hjá Völu síðustu nóttina í rvk..:S. en svona er þetta.

Þetta er búið að vera helv... fínn tími hér í Rvk, var að vinna á daginn fram að námskeiði sem byrjaði kl 18-22, þannig ekki algjört tekjutap í gangi á meðan :o. Svo var ég svo heppinn að Hugrún vinkona mömmu hýsti mig á meðan, já og hún Vala mín ;). Ég veit allavega að ég var engin byrði fyrir Huggu, því hún var farin að rugla eitthvað um að hún vildi ættleiða mig..hehe.8|  

Magnað hvað margir sem maður þekkir/kannast við hér í rvk, ef maður fór í eh partí þá þekkti maður nánast alla, og langflestir frá austurlandi :D. Veit ekki hvern andsk. maður er að gera á Egs.og eftir því sem ég heyrði síðast þá er Andri frændi og þeir sólvallarrugludallar ;) að fara flytja í bæinn þannig eftir er 16-19 ára ME ingar 8|. er einmitt að leita mér að húsnæði í rvk þegar ég fer í skólann í apríl..en ertu að grínast með verðið..!!

 

Helvíti magnað atvik sem gerðist á laugardagskvöldinu þegar ég var að fara heim eftir að hafa skutlað Andra Bergamann, Lísu og Dassa niður í bæ úr partí. Ætlaði að taka u beygu á ljósunum hjá Hringbrautinni eeenn....þá var búið að keyra í hliðina á taxabíl,(sem var þá fyrir minni akrein) og löggan komin að taka skýrslu, og viti menn þar voru Óli gústa og Bjarni hólm í skýrslutöku, ég kveikti ekki strax þó þeir væru beint fyrir framan mig, þá hafði einhver pólverji ekið á rauðu á 50 km hraða beint í hliðina á þeim, ég kallaði á þá og skutlaði þeim svo niður í bæ, þeir voru einmitt í sama partíi. Helv pólverjar..nei segi svona :lol:

Smá punktar yfir það sem er búið að vera bauka :

Vinna

Námskeið auðvitað

Eyða góðum tíma með Völu, þar sem ég naut hverrar mínútu;)

Heimsækja sirrí frænku

Regluleg heimsókn til Hafþórs, Stebba, Oliver,og Jóu 

Djamma með fullt af austfirðingum,

Hitta Dassa og Lindu.

Fara í sumarbústaðaferð ( var helvíti mögnuð :D)

Fara í bláa lónið

Bíó

Út að borða.

Vinna með leiðinlegasta manni heims.

  og já eitthvað fleira sem ég man ekki eftir..

 

Best að halda áfram að læra...

So long suckers..! ;)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 22:26:00 / emil

Hei jó fáðu þér tyggjó

Segi fínt hér í borg óttans, er að spá að flytja hingað, ef ég finn íbúð..

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 20:58:43 / emil

Upprifjun...

Er á upprifjunarnámskeiði í Reykjavík og hef ekkert net þannig býst ekki við að blogga neitt á næstunni, stalst á netið hjá haffa atla og co. í skaftahlíðinni..en veit samt ekki af hverju ég er að halda út bloggi því meðaltal innlit eru 6 þannig spurning um að hætta bara...:) 

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 18:34:57 / emil

Gleðileg jól...

Gleðileg jól allir.. Takk fyrir allt á líðandi ári..

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 23:01:07 / emil

Borg óttans...

Jæja ætli maður muni ekki eyda smá tíma í borg óttans, á komandi mánuðum...Ég var að skrá mig á einkaþjálfaranámskeið á vegum World Class í apríl og mun ég eyða 2 mánuðum þar í námi. En með mér á námskeiðinu verða þeir Steinar Berg og Kristján krouer. Svo er ég að fara eins og ég hef sagt á upprifjunarnámskeið fyrir sveinsprófið 8 jan til 26 jan. Verð að bíta í það súra og myglaða epli að yfirvinnutímanirnir sem hafa verið þokkalegir verða eitthvað minni ef bara engir meðan á þessu stendur..;) jæja þetta skilar sér allt saman seinna...verð stundum að hætta hugsa of mikið um peninga..

Annars lítið í fréttum, jólahlaðborðið tókst fínt og mikil gleði bara, Keflvíkingarnir sem ég er að vinna með voru þó askoti skrautlegir og mikið gaman að þeim þetta kvöld..hehe:lol:. Fulli maður kvöldsins: erfitt að gera upp á milli Gunna sem varð pissfullur á mettíma og sofnaði svona 17 sinnum fyrir kl 23, eða Örvars sem varð svo ofurölva að hann réðst á eh þroskaheftann mann....og var kýldur og er nú búin að joina mér með glóðurauga á vinstri...

Jæja er búin á því...verð að fara sofa...

Heyrumst.. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 21:39:42 / emil

Styttist í...

Að ég fari suður á 20 daga námskeið í F B, 8 jan. Fyrir sveinsprófið sem ég fer í að öllum líkindum 4 Feb, margir sem ég þekki sem eru búnir með rafvirkjann segja það borga sig, ekki skrýtið því að er tæp 40 % fall í rafvirkjun árlega. Ég er líka búin að ryðga heilmikið. Þetta verður ekki mikið vinnutap fyrir mig því ég get unnið í Rafholti í Rvk á daginn og svo námskeiði flesta daga frá 18-22. 

Að ég fari á jólahlaðborð með vinnunni næsta föst.

Jólafrí (22) ef 4 dagar kallast eitthvert frí..:S

Já það er svosem ekki margt annað að gerast hjá mér næsta mánuðinn..:|

Var að hugsa það í dag að fara læra einkaþjálfarann í apríl, hef spáð oft í því og hef hellings áhuga á líkamsrækt, næringarfræði, lífræði. það kostar reyndar 120 þús fyrir 2 mánuði en alls eki svo vitlaust því sem lærður einkaþjálfari þá ertu ( las ég eh staðar) með um 35 þús á mánuði á haus 3 tíma í viku. Fínt að vera í þessu á kvöldin og svo fer nú eitthvað að róast í vinnunni eftir nokkur ár...

Get varla beðið eftir að kaupa mér íbúð, með góðum húsgögnum og fleiru, verð að viðurkenna að ég er orðin dáldið leiður á brauði, kornflexi, próteindrykkjum, væri til í að kunna elda og fá annað slagið MAT í magann, hitt er jú fljótlegra og ekkert ves. maður finnur hvað það er gott að borða góðan mat þegar maður er boðin í mat hjá einhverjum....

Maður er farinn að sjá nokkur andlit hér í bæ sem eru kunugleg, en mikið af skólafólki er að koma í jólafrí. alltaf doldið gaman að þessum jólatíma út af þessu þegar allir snúa heim.því maður þekkir ekki rassgat af fólki hér..!..Svo er systa og brói að koma, það verður gaman að sjá þau...  

Jæja seinna folks..... 


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 20:45:06 / emil

Bakþankar manns í bílskúr..

Svaf út í dag og djöfull var það gott..! ágætis tilbreyting þegar maður þarf að vakna kl 6 aðra daga..reif mig á fætur klukkan 12 ;) og skutlaði múttu út á flugvöll, en kella er að fara í aðgerð á öxlum. eftir það þá sagaði ég niður gerefti og málaði sem fer á klósetthurðar karminn. þreif síðan alla íbúðina, skipti á rúminu og svona, var óður á þvottamoppunni:). Kallinn ekki kallaður snyrtipinni fyrir ekki neitt..Í gærkvöldi fór ég aðeins út með dassa góðvjeni mínum og gísla bróður hans og fengum okkur einn bjór, jább bara einn. dassi kíkti austur með konu sinni og barni. Töluðum um hvað það væri góð hugmynd að halda eitthvað strippkvöld á reyðarfirði, ég er að segja ykkur það að svona 80% af körlum sem eru að vinna þar myndu mæta(erum þa´að tala um 700-900 stk), pólverjar,írar,þýskarar og fleiri útlendingar auk íslendinga.. pælið í því karlar sem gera ekkert nema vinna og það á reyðarfirði þar sem líkurnar á því að fá broddinn þar eru svipaðar og að sjá geirfugl og hann myndi setjast á hausinn á þér. karlar sem sumir eru farnir að hugsa um að sprengja í félaga sinn bara til að fá einhverja losun. Dassi fékk peningamerki í augun og ætlar eitthvað að skoða þetta... þyrfti bara fá einhverja nógu stóra og breiða til að vera í gæslu og nógu marga til að aumingja konurnar kæmust lifandi frá þessu..

jæja ætla fara gera eitthvað annað..8|

out... 


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 21:32:33 / emil

OHHH...

Djöfull, þroskaheft, anskot!! Skaust aðeins í kvöld að fá mér að éta í ísmynd, þegar ég kem út eftir 10 min, þá lá Bónus innkaupakerra upp að bílnum mínum og lítil beygla á hurðinni. Einhver fáviti hefur sleppt kerrunni eftir að hafa raðað í bílinn sinn og kerran runnið á fullri ferð í minn bíl..Fávitabarn. vil kenna einhverjum sem er að vinna hjá fjarðaráli um þetta, því ég sá fullt af gulum jökkum fyrir utan þegar ég var inn í ísmynd. Held það væri best að kæra þann sem er ábyrgur á þessu skáhallandi ljótu gangstétt!!

Hvað er málið, viku eftir að ég keypti mözduna þá fauk tjald í hann og rispaði og nú ljót gul innkaupakerra..!

Hvað viljiði annars í jólagjöf....:P

Emil reiður út..... 


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 21:36:48 / emil

Ekkert merkilegt...

Það sem ég gerði í dag:

* vaknaði kl 06 og keyrði til Reyðarfjarðar í vinnu.

* Lagði nokkrar raflagnir, tengdi,dró út kapla og setti upp lampa.

* hafði áhyggjur á rándýrum verkfærum sem ég á og lágu í kringum fullt af útlendingum.

* varð pirraður að reyna tjá mig við nokkra iðnaðarmenn sem ekki tala ensku og íslensku

* borðaði skyr, brauð með osti og skinku í kaffi, og matartímum. auk þess að sötra á grænu tei (sem sumir vilja kalla greddute) 

* gekk um ber að neðan

* laug um að hafa gengið um ber að neðan

* Keyrði til Egilsst. kl 20 

* Borðaði plokkfisk hjá mömmu

* Hugaði um að bjóða múttu á jólahlaðborð næsta laugardag, þegar hún á afmæli

* Hneykslaðist yfir því hversu hægt gengur að borga niður lánið á bílnum

* Fékk samviskubit yfir því að fara ekki í ræktina

* Skrifaði þetta niður.og á leiðinni að fara skrifa feitt á þennan dag

Sem sagt gríðarlega spennandi dagur.. :o

Lifið heil.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5